14janúar

..

sæl öllsömul ;D

undanfarnir dagar hafa verið rosalega .. ég veit ekki hvað ég á að segja við þeim jú bara að þeir hafi verið ágætir ..

það er búið að vera voða mikið að gera að ég ræð varla við allt saman .. en þetta er bara tímabundið .. vonandi!

aðall minn kom inn þann 10. jan og er hann í heimsókn í öðru hesthúsi .. hesthúsið sem að hann verður í er verið að taka allt í gegn og er ennþá smá í lokahnykkinn;)  hann er núna einn með fimm merum og fílar sig voða stórann eitthvað .. haha.   en þetta eru ekki skap bestu merar sem að ég hef kynnst því að þær eru liggur við með eitthvað samsæri útá aðal , greyið kallinn!  þær láta hann ekki í friði, alltaf að bíta til hans og slá hann, hann veit bara ekkert hvernig hann á að haga sér, hann er voðalegur herramaður í sér því að sama hvað merarnar djöflast í honum þá verður hann aldrei það reiður að hann fari að gera eitthvað á móti .. haha hann bara lætur þær vita hvenar þær eiga að hætta!:)   en annars er hann voða góður hérna í bænum, engin látalæti neitt og gerir það sem hann er beðinn um.  þetta er æðislegur hestur!  en svo núna í kvöld erum við að fara saman á knapamerkjanámskeið.. ég og aðall og vonandi gengur það sem best! ;D

en núna ætla ég að drífa mig uppí hesthús að heimsækja kallinn minn! ;D
þangað til næst!:)

14. janúar 2009 klukkan 15:32
Viktoría Rannveig Larsen
Engin athugasemd
10janúar

09. 01. 09. ;)

gott kvöld ;)

það hefur ekki miið skeð hjá mér síðan þetta leiti í gær.. ;D  ég fór í skólann í morgun og var búin í honum kl hálf 10 !  þvílíkur lúxus;)  þannig að ég fór heim aftur að sofa:)   
svo um tvö leitið gerði ég mig tilbúna og tók strætó niðrí kringlu því að ég var að vinna frá 3 - 9 .. á leiðinni í vinnuna hitti ég mábil og jón á hótelinu á geysi:)  ég tafðist aðeins við að spjalla við þau og svo dreyf ég mig í vinnuna og var að skera niður grænmeti og kjúkkling í 6 tíma! vúhú..  neinei það er ágætt í vinnuni´, sérstaklega ef að ég er að vinna með alexöndru minni;* en eftir vinnu þá kom ég bara heim og er ekki búin að vera gera neitt.. 
en nóg um það ,,   aðall minn kemur í bæinn á morgun!:)  ég er búin að bíða eftir honum núna í mánuð!  alltaf hefur það dregist eitthvað.   ég fór um helgina á myrkholt til gústa og ætlaði svo að taka aðal með mér í bæinn þegar ég færi heim á sunnudeginum en ég festist fyrir austan vegna veðurs (þoku) og kom heim á mánudags kvöld.  þannig að við redduðum prinsinum far í bæinn með hestaflutningum. 

en núna nenni ég ekki meiru þó að ég gæti skrifað eindalaust áfram! :)
þangað til næst ,,
10. janúar 2009 klukkan 00:22
Viktoría Rannveig Larsen
Engin athugasemd
09janúar

viktoría larsen ;D

Jæja-jæja..  blessuð og gleðilegt ár!  

Ég heiti Viktoría Rannveig Larsen og mér hefur alltaf langað að vera með heimasíðu..   í "fáu" skiptin sem að ég bý mér til heimasíðu og heiti því og lofa að ég ætla að vera dugleg að setja inná hana myndir og blogga þá fer það alltaf eitthver út í bláinn ;)  en í þetta skipti ætla ég að reyna mitt besta! 

Svona smá upplýsingar um mig ;

* ég heiti viktoría rannveig larsen og er fædd 3. september árið 1993 ,, sem að gerir mig 15 ára.  ég bý í stór-borginni Reykjavík nánara til tekið í breiðholti og hef búið þar alla mína æfi.  ég geng í hólabrekkuskóla og er þar að klára 10. unda bekkinn, það er ágætt.  ég er á fullu í leiklist í skólanum og erum við 13 í hópnum sem eru að vinna við það að setja upp sýningar til að skemmta unglingadeildinni.  ég hef gríðalegann áhuga á því að læra áfram útfrá leiklist og einhvern daginn verða atvinnu leikari:) 


* svo á ég frábæra fjölskyldu, mömmu (anna), pabba (finnur), tvær systur (lena og karen).  lena eldri systir mín á svo mann (gísla) og 1 árs prins (finn högna).  þau eru flutt af heimilinu á heimilið hans gísla í keflavík og gengur þeim rosa vel bara, gísli að kenna og í fótbolta og lena að fara íhuga að læra einkaþjálfun:)  án þeirra væri ég ekkert! 


* svo eru það náttúrulega vinirnir.. ég er í mjög stórum vinahópi en við erum öll voða náin hvo öðru,  við erum alls 4 stelpur og 6 strákar;)  ég elska þau útaf lífinu!   sunna, alexandra og dóra eru bestu vinkonur mínar og treysti ég þeim mest af öllum!;* 


* síðast en ekki síst eru áhugamálin mín.. það er helst hestar! en líka að ferðast, vera með vinum og versla;) ég á 3 hesta eins og er, einn gelding sem heitir aðall frá flagbjarnarholti, meri sem að heitir myrká frá syðra-langholti og svo folald sem heitir neró frá vorsabæjarhól:) (hann er undan myrká og tígul frá gýgjarhóli).   núna veturinn '09 verð ég bara með eitt af þessum hrossum í húsi í fák, hann aðal minn.  svo um vorið '09 fer ég með öll hrossin með mér á myrkholt í biskubstungum þar sem ég verð að vinna hjá gústa lofts eins og síðasta sumar;)  einnig hef ég gríðalegann áhuga á því að læra útfrá hestunum tammningar og vinna við það einhvern daginn.



en þá er það komið í bili ;D  þangað til næst!
09. janúar 2009 klukkan 00:05
Viktoría Rannveig Larsen
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Leit

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Viktoría Rannveig Larsen
  • Staður: reykjavík
  • Atvinna: sölumaður á soliman's
  • Hjúskaparstaða: lausu
  • Um mig: ég heiti viktoría rannveig larsen og er fædd árið '93 ,, ég er í 10 bekk í hólabrekkuskóla. ég er í hestum ;D ef þú vilt kynnast mér meira þá er msnið mitt "hestazkvis93@hotmail.com" ;)

Textareitur

"when it hurts to look back & you are scared to look ahead ,, you can always look beside you & your best friend will be standing right there! <3"

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan